Menningarvaktin
Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á vaktinni fyrir þig.
Episodes

Wednesday May 13, 2026
Wednesday May 13, 2026
Blaðamennirnir Magnús Jochum og Valur Grettisson mættu til Símonar. Bubbi Morthens kom svo í skemmtilegt spjall um nýjustu plötuna sína.

Thursday May 07, 2026
Thursday May 07, 2026
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en óhætt er að segja Þjóðleikhúsið hafi átt sýningar í ár sem hafa bæði vakið athygli og umtal. Óresteia sló í gegn hjá gagnrýnendum og áhorfendum og Ormstunga sannaði að söngleikir þurfa ekki endilega að koma tilbúnir frá útlöndum. Þjóðleikhúsið var einnig í umræðunni í tengslum við skipun óperustjóra en Þjóðaróperan svokallaða endaði í samruna við Þjóðleikhúsið sem verður því miðpunktur óperustarfsemi í landinu næstu árin.

Thursday Apr 30, 2026
Thursday Apr 30, 2026
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #14 fær Símon Birgisson til sín Egil Heiðar Anton Pálsson, borgarleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en Egill var skipaður borgarleikhússtjóri síðasta vor og er þetta því fyrsta leikárið hans í þessu hlutverki; sýningar á borð við Moulin Rouge sem sló í gegn og svo Hamlet -ein umdeildasta leiksýning ársins.

Thursday Apr 16, 2026
Thursday Apr 16, 2026
Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson fóru yfir sviðið og Ómar Úlfur mætti á plötuvaktina.

Friday Mar 27, 2026
Friday Mar 27, 2026
Símon, Magnús Jochum og Valur fara um víðan völl. Í lok þáttar mætir Trausti Júlíusson og rýnir í nýútgefna jazzplötu.

Friday Mar 13, 2026
Friday Mar 13, 2026
Velkomin á Menningarvaktina á Vísi. Hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Ég heiti Símon Birgisson og skrifa um leiklist á Vísi og hjá mér eru gestir þáttarins í dag - Jónas Sen tónlistargagnrýnandi Vísis og Finnur Bjarnason óperusöngvari og nýráðinn Óperustjóri.
Tónlistin er undir nálinni hjá okkur í dag. á Finnur Bjarnason mun sitja fyrir svörum okkar á Menningarvaktina um hina nýju íslensku Óperu sem loksins er orðin að veruleika eftir miklar umræður og jafnvel deilur. Útvarpsmaðurinn Ómar Úlfur mætir til mín á Plötuvaktina með glænýja plötu hljómsveitarinnar Gorillaz þar sem Íslandsvinurinn Damon Albarn er í aðlhlutverki auk þess sem við ræðum um goðsögnina Magnús Eiríksson og nýútkomna safnplötu með hans bestu lögum.
Og Menningarvaktin kíkti á þýska kvikmyndahátíð um helgina í Bíó Paradís og við Jónas rýnum í myndina Köln75 þar sem jazzgoðsögnin Keith Jarret og sögufrægir tónleikar hans í Kölnarborg eru í aðalhlutverki

Thursday Feb 26, 2026
Thursday Feb 26, 2026
Nýjar íslenskar kvikmyndir verða í aðalhlutverki í þessum þætti. Menningarvaktin skellti sér á frumsýningu stórmyndarinnar Röskun en framleiðendur myndarinnar hafa bent á að þetta sé eina íslenska kvikmyndin fullfjármagnaða íslenska kvikmyndin á árinu. Röskun var hins vegar ekki eina íslenska kvikmyndin frumsýnd í vikunni - Menningarvaktin skellti sér í Bíó Paradís á myndina Dimmalimm - Returning to Lulu sem er einskonar hugarfóstur Mikaels Torfasonar rithöfunds og eiginkonu hans, Stefaníu Berndsen, leikkonu og tekin upp í Covid. Plötuvaktin verður svo á sínum stað en þar mun Trausti Júlíusson rýna í tvær glænýjar íslenskar plötur - Julia eftir Ásgeir Trausta og Spíru - endurkomuplötu Ólafar Arnalds.

Friday Feb 13, 2026
Friday Feb 13, 2026
Gestir Menningarvaktarinnar eru Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagrýnandi og sérfræðingur leikminjasafns Íslands, Valur Grettisson blaðamaður og Ómar Úlfur Eyþórsdóttir útvarpsmaður. Í þættinum er fjallað um leiksýningarnar Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu og Bústaðinn í Tjarnarbíó. Við ræðum einnig hvaða lærdóm Þjóðleikhúsið getur dregið af velgengni Ormstungu og Óresteiu. Í seinni hluta þáttarins mætir Ómar Úlfur á vinylvaktina og við ræðum glænýja plötu Megadeth - síðustu plötu sveitarinnar og afmælisútgáfu plötunnar Geislavirkir með Utangarðsmönnum.

Friday Jan 30, 2026
Friday Jan 30, 2026
Gagnrýnendur Vísis þeir Magnús Jochum Pálsson og Jónas Sen voru gestir Símonar í Menningarvaktinni.

Thursday Jan 15, 2026
Thursday Jan 15, 2026
Í nýjasta þætti Menningarvaktarinnar fóru gestir Símonar Birgissonar - þau Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson yfir bestu og verstu sýningar ársins 2025.
